top of page
Concrete Wall

Léttur 2009

Fyrsta æfing vorannar var þriðjudaginn 13. janúar.


Óskalög sjómanna verður þema vetrarins og tónleikarnir um vorið tileinkaðir íslenskum sjómannskonum.


Við erum 115 sem byrjum vorönn

Árshátíð Léttsveitarinnar var haldin í Vodafonehöllinni laugardaginn 21. febrúar. “Hafið lokkar og laðar” var þema hátíðarinnar og salurinn skreyttur í samræmi við það. Söngatriði voru á dagskrá og hljómsveitin Hafrót lék fyrir dansi.

Haldið var í æfingabúðir í Reykholt í Borgarfirði föstudaginn 24. apríl. Æft var í kirkjunni á laugardeginum og tónleikar haldnir þar kl. 16.00. Ekki óraði okkur fyrir því að kosningar til Alþingis yrðu settar á þennan dag þegar við bókuðum kirkjuna.
Það varð þó ekki aftur snúið með það og ákveðið að láta slag standa.
Aðsókn á tónleikana var dræm, enda ekki bara kosningadagur, heldur líka bæði afmæli og héraðshátið með tilheyrandi uppákomum um allar sveitir. Við vorum þrátt fyrir þetta afar ánægðar með vel lukkaða tónleika og litum á þetta sem góða æfingu fyrir vortónleika okkar sem voru á næstu grösum. 


Efnisskrá tónleikana 

Kórinn söng í afmælisteiti Jóns Kr. Ólafssonar sem vinir hans héldu í sal FÍH, í öðru afmæli og var með söngskemmtun í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Þá tók Léttsveitin þátt í göngu upp Laugaveginn, þann 23. maí, í minningu þvottakvenna sem gengu inn í Laugardal og þvoðu þvott sinn þar. Þessi viðburður var á vegum Listahátíðar Reykjavíkur.

Vortónleikar Háskólabíói

Vortónleikar Léttsveitarinnar báru að þessu sinni yfirskriftina "Óskalög sjómanna". Tónleikarnir voru í Háskólabíói 3. maí og sungið var fyrir fullu húsi. Gestasöngvarar voru Gylfi Ægisson og Helena Eyjólfsdóttir. Ótrúlega flottir og skemmtilegir tónleikar.
 

Efnisskrá tónleikana

Myndir á Vísi frá tónleikunum 


 
Fyrsta æfing á haustönn var þriðjudaginn 1. september í Fóstbræðraheimilinu.

Og við erum 115 sem byrjum haustönn

Stjórn Léttsveitarinnar 2009-2010

Stjórn 2007-2008 Margrét Þorvalds.jpg

Margrét

Sveinbjörg stjórn 2007-2008.jpg

Sveinbjörg

Stjórn 2009-2010 Erna Hanna.jpg

Erna Hanna

Stjórn 2009-2010 Kristín Jónsd.jpg

Kristín

Stjórn 2009-2010 Guðrún Narfa.jpg

Guðrún Narfa

Suðurnesin september 2009

Laugardaginn 26. september fór Léttsveitin á Suðurnesin.
Keyrt var í gegnum Voga á Vatnsleysuströnd, síðan í Sandgerði og skoðað safn. Í Keflavik var stoppað í kerta- og glerverksmiðju og keyptu Léttur upp nánast allan lagerin af kertunum. Sungið í Grindavíkurkirkju og var vel við hæfi að syngja sjómannalögin í sól, roki og rigningu. Frábærir tónleikar í alla staði. Snætt var á veitingahúsi í Grindavík og haldið heim um kl. 22.00 eftir frábæra ferð. 

Efnisskrá tónleikana 

Umsögn um tónleikana á grindavik.is 


 Langur sunnudagur var 18. október í Fóstbræðraheimilinu.

Dekur & djamm

Dekur og djamm var haldið í Fóstbræðraheimilinu 14. nóvember. Ýmislegt var á boðstólum, sérstaklega var mikið af íslenskri hönnun. Ýmis skemmtiatriði og auðvitað tók Léttsveitin lagið.

Jólatónleikar Bústaðakirkju

Jólatónleikar þriðjudaginn 8. desember kl. 20.00 og laugardaginn 12. desember kl. 16.00.
Báðir tónleikarnir voru í Bústaðakirkju. Einsöngvari á þessum tónleikum var stórtenórinn Kristján Jóhannsson og fiðluleikari Hjörleifur Valsson. Fallegir tónleikar fyrir fullu húsi í bæði skiptin.
 

Efnisskrá tónleikana 

Fréttatilkynning í des
Viðtal & umfjöllun nóv 2009

bottom of page