top of page
Concrete Wall

Léttur 1997


Léttsveitin fór í sínar fyrstu æfingabúðir á Úlfljótsvatn í mars 1997. Gist var í nokkrum orlofshúsum og æft á daginn frá föstudegi til sunnudags. Á laugardagskvöldið var mikil matarveisla með ýmsum uppákomum og dansi. Allar skemmtu sér vel og kynni okkar urðu nánari.

Léttsveitarkonur voru 113 þetta vorið

Blaðagreinar & viðtöl 1997

Fyrstu "alvöru" tónleikarnir

Fyrstu alvöru tónleikar Léttsveitarinnar voru í Íslensku Óperunni 22 og 27 apríl 1997 undir yfirskriftinni "Græn sveifla". Á efnisskránni voru lög eftir Sigfús Halldórsson, íslensk dægurlög, lög úr söngleikjum og írsk "græn" lög. 
Hljómsveitin Rússibanarnir lék með okkur auk Wilmu Young á fiðlu og Stínu bongó á bongótrommur, en Stína hafði einmitt gengið til liðs við Léttsveitina haustið 1996. Og ekki má gleyma að nokkrar léttstígar konur úr kórnum dönsuðu Riverdance undir stjórn Lellu, sem líka er í kórnum.                                                                                                             
 

Græn sveifla 1997.jpg

Léttsveit Reykjavíkur vorið 1997

Léttsveitin söng á tónleikum með Kvennakór Reykjavíkur í maí 1997. Þetta voru kveðjutónleikar Margrétar J. Pálmadóttur þar sem hún var að hætta sem stjónandi Kvennakórsins. Á þessum tónleikum komu fram allir kórar sem störfuðu undir merkjum Kvennakórsins, þ.e. Kvennakór Reykjavíkur, Vox feminae, Senjoríturnar, Léttsveitin, Kórskólinn og Stúlknakór Reykjavíkur.


Vorið 1997 var stofnaður gönguhópur Léttsveitarinnar og var gengið um Öskjuhlíðina á þriðjudagskvöldum allt sumarið auk þess sem farið var í fjölskylduútilegu helgina fyrir verslunarmannahelgi. 


Í byrjun nóvember 1997 fór svo kórinn í aðra utanlandsferð, aftur til Írlands, en í þetta sinn til Sligo, sem er nálægt landamærum Norður-Írlands. Þar var tekið þátt í kóramóti og var ferðin frábærlega vel heppnuð þó ekki ynnum við til verðlauna.

bottom of page