top of page
Concrete Wall

Léttur 1999

Auglýsing Sumarsveifla 1999.jpg

Sumarsveifla Léttsveitarinnar var haldin í Íslensku óperunni á sumardaginn fyrsta 22. apríl 1999 kl. 17 og 20. Á efnisskránni voru íslensk ljóð og dægurlög, flest í frábærum útsetningum Aðalheiðar. Gestur okkar á þeim var tónleikum var Jón Kr. Ólafsson frá Bíldudal, auk hljóðfæraleikaranna Árna Scheving, Péturs Grétarssonar, Óskars Guðjónssonar og Tómasar R. Einarssonar. Myndin sem notuð var í auglýsingunni er eftir Björgu Atla myndlistakonu sem er í Léttsveitinni.

Léttsveitarkonur voru 101 talsins þetta vorið

Blaðagreinar og viðtöl 1999

Aðalfundur


Haldinn var aðalfundur í lok vorannar. Skipt var út í stjórn. Var þeim sem úr stjórn gengu þökkuð góð störf og færðar gjafir.

Úr stjórn gengu þær Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Gerður H. Hafsteinsdóttir, Særún Ármannsdóttir og Friðgerður Benediktsdóttir. Inn komu þær Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir, Sigríður Friðþjófsdóttir, Ingigerður Konnráðsdóttir og Eygló Eiðsdóttir. Anna Axelsdóttir var sú eina sem sat áfram.

Stjórn Léttsveitarinnar 1999-2000

Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir 2.sóp, formaður
Sigríður Friðþjófsdóttir 2.sóp, varaformaður
Ingigerður Konnráðsdóttir 2.sóp, gjaldkeri
Eygló Eiðsdóttir 1.alt, ritari
Anna Axelsdóttir meðstjórnandi

Gönguhópurinn byrjaði strax í lok vorannar og var að þessu sinni gengið frá Laugardalnum. Lauk sumrinu í ágúst með piknik í garðhúsinu í Laugardal þar sem ekki var hægt að vera undir berum himni sökum rigningar.

Farið var í útilegu Léttsveitarinnar síðustu helgina í júlí. Haldið var í Galtalæk og tjaldað undir Brík og mættu Léttsveitarkonur með maka, börn, barnabörn og hunda. Allir skemmtu sér vel í ágæis veðri.

Tónleikar í Njarðvík

Í nóvember 1999 sótti Léttsveitin Suðurnesjamenn heim. Haldnir voru tónleikar í Njarðvíkurkirkju sem tókust með ágætum. Eftir tónleikana hélt Kvennakór Suðurnesja okkur mikla matarveislu í Innri-Njarðvík og skemmtu allir sér ljómandi vel og var mikið fjör.

Auglýsing Njarðvík 1999
bottom of page