top of page

Árið er 1995 og ævintýrið að hefjast

Fyrsta stjórn 1995.jpg

Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur hóf æfingar 19. september 1995 undir hatti Kvennakórs Reykjavíkur. Stjórnandi kórsins var Jóhanna V. Þórhallsdóttir og píanóleikari kórsins Aðalheiður ÞorsteinsdóttirÆft var í húsi Kvennakórs Reykjavíkur við Ægisgötu á þriðjudagskvöldum. Á efnisskránni eru íslensk og erlend lög í léttari kantinum.

Fyrstu tónleikar Léttsveitarinnar voru haldnir í 3. desember 1995 í húsi Kvennakórs Reykjavíkur við Ægisgötu. Á efnisskránni voru ýmis lög auk nokkurra jólalaga. Húsfyllir var af vinum og vandamönnum og skemmtu allir sér vel.

Fyrsta stjórn Léttsveitarinnar 1995-1998

Þóra Sæunn Úlfsdóttir, 2. sópran, formaður
Gerður Hulda Hafsteinsdóttir, 2. sópran, gjaldkeri
Friðgerður Benediktsdóttir, 1. sópran
Særún Ármannsdóttir, 1. alt
Anna Axelsdóttir, 1. alt

bottom of page